sunnudagur 7. janúar 2007
Skólinn er byrjaður aftur, mér til mikillar gleði. Námsefnið ekkert skárra og kennararnir, ja kennararnir eru eins og áður, sumir fínir, einstaka snillingar
og sumir spila á stuttan þráð. Þegar allt kemur til alls er þetta álíka áhugavert og fyrir jól, vona bara að sjötti bekkur standist væntingarnar, það verður
að minnsta kosti saga þá. Ég sakna sögu.
Ok, nóg um það, fór í matargat (mínus Ari) í gærkvöldi. Það var gaman, fengum taco. Það var gott. Verst að ég var ekki með myndavélina mína, ég treysti bara á
hitt fólkið...
Jæja, ég hef svo gríðarlegan áhuga á að gera eðlisfræðina mína fyrir morgundaginn að ég held að ég verði að kveðja. Góðar stundir.
maria hefur talað |
mánudagur 1. janúar 2007

maria hefur talað |
miðvikudagur 27. desember 2006
Howdy
Gasalega er ég dugleg að blogga...
Allavega, það er ansi næs að vera í jólafríi, góður matur í öll mál... pulsur :D Svo fékk ég líka myndavél í jólagjöf, ég dýrka hana, bara best. Fékk líka
yndislegustu peysu í heimi frá stórabró.
Fór svo í dag á húllumhæið niðri á strandgötu og fékk viðurkenningar-pening fyrir að vera íslandsmeistari á árinu. Ekki slæmt.
Vá, miðað við manneskju sem er búin að vera blaðrandi og bullandi í allan dag hef ég furðulega lítið að segja, kannski er mér farið að förlast.
maria hefur talað |
fimmtudagur 21. desember 2006
Jæja, kominn tími á smá öppdeit?
-Kláraði prófin, fékk einkunnir, gekk vel
-Skrifaði jólabréfið með brósa
-Sá hinn sami kom í morgun, með gilmore og klipsch :D
-Fór á jólaball Kvennó í gær, það var gaman
Ég dýrka að vera í jólafríiii!!!

maria hefur talað |
Traffíkin
Þér eruð númer er heimsækið síðu þessa. Þér eruð ávallt velkomnir, hér er ávallt heitt á könnunni.