Anna Guðný Guðmundsdóttir
Heimasíða / Homepage

Nýr tvöfaldur geisladiskur með flutningi Önnu Guðnýjar á verki Messiaens Tuttugu tillit til Jesúbarnsins er kominn út.
Fyrir þennan flutning hlaut Anna íslensku tónlistarverðlaunin 2009 sem flytjandi ársins.
Diskurinn fæst í 12 Tónum við Skólavörðustíg.
Einnig er hægt að panta diskinn hjá agg@simnet.is eða á Facebook.
Verð 2.500 krónur
----------------
Jónas Sen gefur geisladiski Önnu Guðnýjar hæstu einkunn í Morgunblaðinu
Laugardaginn 25. júlí, 2009 - Tónlist
TÓNLIST - Geisladiskur
Mystískar hugleiðingar
Olivier Messiaen: Tuttugu tillit til Jesúbarnsins *****
„Útkoman er unaðsleg áheyrnar. Það er óhætt að mæla með þessum geisladiski!“ segir Jónas Sen meðal annars í dómnum.
EINN eftirminnilegasti viðburðurinn í tónlistarlífinu í fyrra var heildarflutningur Önnu Guðnýjar Guðmundsdóttur á risaverki Messiaens, Tuttugu tillitum til Jesúbarnsins. Tónleikarnir tókust afburðavel, Anna Guðný lék tónsmíðina af einstökum glæsibrag, túlkun hennar var gædd allskonar litum sem lyftu tónlistinni upp í hæstu hæðir.
Eins og titillinn ber með sér er verkið í tuttugu köflum. Hver kafli er um tilvist Jesúbarnsins út frá ólíkum sjónarhornum, kaflarnir eru guðfræðilegar, nánast mystískar hugleiðslur um margbreytileika sýnilegs og ósýnilegs veruleika. Annarlegir en heillandi hljómar eru áberandi og þeir eru gjarnan einskonar leiðarstef, holdgerving lykilhugtaka í heimsmynd tónskáldsins. Heildarmyndin er veröld undra sem auðvelt er að sökkva sér í aftur og aftur.
Rétt eins og á tónleikunum í fyrra er túlkun Önnu Guðnýjar vönduð, áreynslulaus en samt fjölbreytileg og vel ígrunduð. Hinn guðlegi heimur Messiaens birtist manni á einkar sannfærandi hátt.
Upptakan, undir stjórn Bjarna Rúnars Bjarnasonar er tær, en líka hlýleg. Útkoman er unaðsleg áheyrnar. Það er óhætt að mæla með þessum geisladiski!
Jónas Sen
Anna gerði víðreist í sumar og lék hluta verks Messiaens í Stykkishólmskirkju, í Ketilhúsinu á Akureyri, í Reynihlíðarkirkju á Mývatni og í Sigurjónssafni á Laugarnestanga og í Gljúfrasteini í Mosfellsdal.
.
Hér áhugaverð slóð:
Anna fékk fimm stjörnur af fimm mögulegum í gagnrýni Jónasar Sen í Morgunblaðinu:
Þriðjudaginn 9. september, 2008 - Tónlist
TÓNLIST - Langholtskirkja
Hringi-tónar Guðs
Píanótónleikar*****
Anna Guðný
Guðmundsdóttir
Anna Guðný Guðmundsdóttir flutti Tuttugu tillit til Jesúbarnsins eftir Olivier
Messiaen. Laugardagur 6. september.
EKKI er sjálfgefið að fá frídag þótt maður eigi afmæli. En að halda risatónleika á
fimmtugsafmælinu sínu hlýtur að teljast óvanalegt. Kannski voru þó tónleikar þar sem Anna
Guðný Guðmundsdóttir spilaði Tillit til Jesúbarnsins eftir Messiaen táknrænir. Verkið er í tuttugu
köflum og tekur vel á þriðja tíma. Að flytja slíkt stórvirki á afmælinu sínu er í anda píanóleikara
sem hefur í gegnum tíðina verið einn mest áberandi tónlistarmaðurinn í listalífinu hér. Það liggur
við að Anna Guðný komi fram á öðrum hvorum kammertónleikum hér og á þriðja hverjum
geisladiski. Hún er einhver duglegasti tónlistarmaður landsins.
Og ekki bara sá duglegasti. Tuttugu tillit til Jesúbarnsins er flókin tónsmíð og aðeins á færi
hæfustu píanóleikara. Það segir sína sögu að enginn íslenskur píanóleikari hefur áður leikið
verkið í heild sinni á tónleikum, a.m.k. ekki hérlendis. Anna Guðný er afreksmanneskja.
Um hvað er tónlistin? Hún er, eins og sagði í tónleikaskránni, hugleiðing um Jesúbarnið út frá
mismunandi sjónarhornum. Allt frá „óumræðilegu tilliti föðurins til hins margfalda tillits kirkju
kærleikans, og þar á milli fordæmislaust tillit anda fagnaðarins, ásamt ofurljúfu tilliti meyjarinnar,
síðan englanna, vitringanna og óefniskenndra eða táknrænna vera...“.
Til að holdgera í tónum þennan ósýnilega veruleika trúaðs manns notaði Messiaen sérstætt
tungumál sem hann þróaði sjálfur, en byggði að nokkru á indverskum og grískum hefðum.
Seiðandi, annarsheimslegir hljómar eru áberandi. Oftar en ekki mynda þeir leiðarstef, táknmyndir
lykilhugtaka er síðan þróast og ummyndast í tónlistinni.
Anna Guðný kynnti þessi stef áður en hún hóf leik sinn og það var vel til fundið. Það skipti miklu
máli fyrir hlustandann að átta sig á hornsteinum verksins, þekkja hringitóna guðlegrar
kraftbirtingar – ef svo má að orði komast – og skynja hvernig tónskáldið svaraði þeim.
Vissulega er tónlist Messiaens ekki allra og ég varð var við að nokkrir tónleikagestir létu sig
hverfa í hléinu. Hugsanlega má gagnrýna tónskáldið fyrir að kunna sér ekki hóf; kannski hefði
hann getað sagt það sem þurfti á skemmri tíma. Auk þess er píanóið gætt ákveðnum
takmörkunum, það er ekki eins og orgelið sem býr yfir ótal röddum. Rödd píanósins getur því
virkað einhæf, a.m.k. fyrir suma.
Túlkun Önnu Guðnýjar var samt allt annað en einhæf. Leikur hennar var áreynslulaus en ávallt
merkingarþrunginn. Vandaður ásláttur og úthugsuð hendingamótun, ásamt kraftmiklum
andstæðum í hraða og styrkleika, mynduðu hina fegurstu liti sem tóku sífelldum breytingum.
Hinn guðlegi heimur Messiaens birtist manni ljóslifandi í tónlistinni.
Þetta voru frábærir tónleikar. Nánast um leið og Anna Guðný hafði lokið leik sínum stóðu
tónleikagestir á fætur og hylltu hana. Maður verður ekki oft var við þvílíka skýlausa aðdáun. Hún
átti hana fullkomlega skilið. Hvílík afmælisveisla!
Jónas Sen
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanóleikari
Anna Guðný hljóðritaði fyrir Ríkisútvarpið í ágúst 2008 "Vingt regards sur
l´enfant-Jésus" eða "Tuttugu sýnir á Jesúbarnið" eftir Olivier Messiaen í
tilefni aldarafmælis hans. Hún flutti verkið í Langholtskirkju kl.
11.00 laugardaginn 6. september nk. og síðan hluta úr því kl. 15.15
Gudmundsdottir has just finished recording for the Icelandic Radio "Vingt
regards sur l´enfant-Jésus" "Twenty Contemplations of the infant Jesus " by Olivier Messiaen (1908-1992). She
gave a public performance of the piece in Langholtskirkja, Reykjavik,
Iceland on Satuday September 6th 2008 at 11 a.m.
Anna Guðný og Bjarni Rúnar, tónmeistari Ríkisútvarpsins
Curriculum vitae
ANNA GUÐNÝ GUÐMUNDSDÓTTIR er
fædd í Reykjavík. Hún brautskráðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1979
og stundaði Post Graduate-nám við Guildhall School of Music and Drama í London
með sérstaka áherslu á kammertónlist og meðleik með söng. Hún hefur starfað á
Íslandi í rúma tvo áratugi og komið fram sem einleikari meðal annars með Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Anna Guðný hefur verið píanóleikari Kammersveitarinnar um langt
árabil; ferðast víða með henni og leikið inn á geisladiska, meðal annars
píanókonserta eftir Leif Þórarinsson, Atla Heimi Sveinsson og Þorkel
Sigurbjörnsson. Samstarf hennar og Sigrúnar Hjálmtýsdóttur,
sópransöngkonu hefur staðið síðan á námsárunum í London. Sumarið 2004
starfaði Anna sem píanóleikari við tónlistarakademíuna í Sion í Sviss. Hún
hefur komið fram á Listahátíð í Reykjavík og leikur reglulega innan raðar TÍBRÁR-tónleikanna
í Salnum í Kópavogi. Anna var bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2002. Hún var
tilnefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna 2004 sem flytjandi ársins. Hún
kenndi við tónlistardeild Listaháskóla Íslands frá stofnun hennar 2001 til
2005, en það haust var hún ráðin píanóleikari við Sinfóníuhljómsveit
Íslands. Hún fékk Íslensku Tónlistarverðlaunin 2009 fyrir flutning sinn á "Tuttugu tillit til Jesúbarnsins"eftir Olivier Messiaen í Langholtskirkju 6. september 2008. Þann 1. júlí síðastliðinn kom síðan út geisladiskur með leik hennar á þessu verki.
Anna Guðný Guðmundsdóttir,
pianist
Curriculum Vitae
Anna Gudny Gudmundsdottir completed her soloist´s
examination at Reykjavík College of Music in 1979. She continued her studies in
London at the Guildhall School of Music, where she received her Post Graduate
diploma with a focus on chamber music and lieder accompaniment. Anna Guðný has appeared as a soloist
with the Iceland Symphony Orchestra and the Reykjavík Chamber Orchestra
(including performances of Messiaen’s Des Canyons aux Étoiles, under the baton
of Paul Zukofsky, and concertos by Atli Heimir Sveinsson and Leifur
Þórarinsson) and has performed with various other groups, ensembles and
singers. She has travelled widely, both with the Reykjavík Chamber Orchestra
and with soprano Sigrun Hjalmtysdottir, and has given concerts around Iceland,
as well as in the northern countries, numerous places in Europe, Japan, Canada,
China, and the United States. Her performances can be heard on numerous
CDs. She received a nomination for "Performer of the year" in
2004 at the Icelandic Music Price.
Anna Gudny Gudmundsdottir taught at the Iceland Academy of the Arts´
music department from its foundation in 2001 until 2005 when she was appointed
pianist with the Iceland Symphony Orchestra.
Anna Guðný Guðmundsdóttir
Leirutangi 49
270 Mosfellsbær
Iceland
Tel/Fax: +354-566-7581
agg@simnet.is
Uppfært 24. ágúst 2009