<% 'Dimension variables Dim adoCon 'Holds the Database Connection Object Dim rs 'Holds the recordset for the records in the database Dim strSQL 'Holds the SQL query to query the database %>
Fréttir
Fréttir
Nonni skrifaði þann 17.maí 2005
Fríða og Óli í Lúx
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Óli svalar þorstanum í gosbrunni.


Fríða og Óli kíktu í heimsókn til okkar síðustu vikuna í maí. Þau komu með sumarveðrið með sér því flesta dagana var um og yfir 30 stiga hiti.

Hérna eru myndir af því sem við gerðum okkur til dundurs.   

Myndir

 

Nonni skrifaði þann 17.maí 2005
Litla fjölskylan á ferð um Lúx
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Sveitir Lúx jafnast næstum á við þær íslensku.


Það er komið sumar í Luxembourg, sauðburði löngu lokið og flestir bændur búnir með fyrsta slátt. Myndin hérna til hliðar var tekin á sunnudagsrúntinum um sveitir Lúx.

Við heimsóttum einn af stærri dýragörðum Evrópu í síðustu viku en hann er í franska smábæjnum Amneville sem er rétt sunnan við Lúx. Garðurinn er sérdeilis prýðilegur og maður komst í skemmtilega mikla nálægð við dýrin. (sjá nánar í myndum)

Við fengum fyrstu gestina núna um helgina, en Drífa og Ásgeir kíktu í við á ferð sinni um Þýskaland. Þetta er einungis toppurinn á ísjakanum, Fríða og Óli væntanleg núna í lok maí og svo er sumarið uppbókað langt fram á haust.

Við komum heim í sumarfrí 13. júní. og verðum í tvær vikur á klakanum. Sjáumst þá :)

Myndir

 

Nonni skrifaði þann 19.janúar 2005
Litla fjölskyldan á Kanarí
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Sváfnir Ingi kunni vel við sig í sólinni á Kanarí


Við flúðum kuldan og svartnættið hérna heima og skruppum til Kanaríeyja 4.janúar og dvöldumst þar í tvær vikur. Við vorum á Playa del Ingles (Ensku ströndinni) á Gran Canaria sem er þriðja stærsta eyjan í eyjaklasanum. Við fengum fínt veður og ferðin heppnaðist vel í alla staði.
Sváfnir kunni vel við sig í hitanum, leik við hvern sinn fingur og var ekkert að pirra sig á 6 tíma flugferðum til og frá eyjunum.

Hér að neðan er hægt að nálgast ylheitar sólskínsmyndir.

Myndir

 

Nonni skrifaði þann 1.janúar 2005
Jólin 2004
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Sváfnir Ingi með jólasveinahúfu


Þá eru fyrstu jól Sváfnis yfirstaðin. Við vorum í rólegheitum í sveitasælunni yfir jólin.

Meðfylgjandi eru jólamyndir

Myndir

 

Nonni skrifaði þann 10.nóvember 2004
Sváfnir Ingi eintanni
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Sváfnir Ingi er kominn
með eina tönnslu og farinn að borða grauta með bestu list. Hann náði að velta sér í fyrsta skipti í dag og í kvöld var hann farinn að rúlla sér út um allt gólf.



Nonni skrifaði þann 10.nóvember 2004
Sváfnir Ingi og bardaginn við björninn
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Sváfnir Ingi með yfirhöndina í bardaganum við hvíta björninn
.


Sváfnir háði hetjulegann bardaga við hvíta björn í vikunni.

Meðfylgjandi eru myndir úr bardaganum

Myndir

Annars er allt gott að frétta. Sváfnir eignaðist frænku 23.október þegar að Þórður Þór og Karen eignuðust litla prinsessu.
Sváfnir, sem varð fimm mánaða í síðasta mánuði, er orðinn 8.8 kg. og 72 cm sem telst vel í meðallagi FYRIR 9 MÁNAÐA. Hann er s.s. ansi stór miðað við aldur og með þessu áframhaldi verðu hann orðinn stærri en mamma sín þegar hann verður sjö ára.

Nonni skrifaði þann 3.október 2004
Í fréttum er þetta helst...
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Sváfnir Ingi var ekkert alltof hress í sturtunni
með mömmu sinni.


Sváfnir er byrjaður í ungbarnasundi og hefur það gengið upp og ofan. Hann grenjaði tvo fyrstu tímana, foreldrum sínum til mikillar gremju og þá sérstaklega kappfullum föðurnum. En núna síðasta föstudag gékk allt vel og vonandi er Sváfnir búinn að taka sundið í sátt.

Sváfnir fór í vigtun og lengdarmælingu 1.sept og mældist þá 67 cm og 7,5kg.

Sváfnir fór í réttir í fyrsta skiptið. Honum fannst ekki mikið til þessar kinda koma, heldur öskraði hann á þær allan tímann með smá lúrum á milli.

Svo er Sváfnir búinn að faraí netaveiði í Veiðivötnum og ýmislegt fleira. Myndirnar eru því eins og segir í auglýsingunni óttalegur samtíningur úr hinu og þessu sem gerst hefur síðust daga.

Myndir

 

Nonni skrifaði þann 3.október 2004
Rísmjölsgrautur
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Sváfnir Ingi var ekkert yfir sig sáttur með grautinn.

Verði svipbrigðin sem Sváfnir sýndi þegar að honum var gefinn rísgrautur í fyrsta skipti notuð í auglýsingaskyni fyrir grautinn, reikna ég ekki með að hann seljist mikið.
En allavegna þá gáfum við Sváfni graut í fyrsta skipti núna í vikunni. Hann var ekki viss í fyrstu hvernig hann ætti að taka þessu og leit síðan álit sitt skýrt í ljós.


Nonni skrifaði þann 15.ágúst 2004
Í sól í Selvík
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Sváfnir Ingi með mömmu sinni í heitapottinum.

Við vorum í Landsbanka-bústað í Selvík við Álftavatn í síðustu viku. Þetta var einskonar "skírnarferð" því við fórum þangað beint eftir skírn.
Veðrið var frábært allan tímann, sól og hitinn í kringum 30°C. Allt að því of gott, ef það er þá hægt ;) . Sváfnir fór í "heitan-" pott í fyrsta skiptið og undi sér vel enda kærkomin kæling í hitanum.

Það er skemmst frá því að segja að röð tilviljana leiddi til þess Elsa vann Jón í minigolfi en hann leiddi keppnina eftir fyrri keppnisdaginn. Hnusss


Birna amma í Hveragerði og Búbbi kíktu í mat til okkar á fimmtudagskvöldinu. Hérna eru nokkrar myndir úr ferðinni:

Myndir

 

Nonni skrifaði þann 10.ágúst 2004
Skírn
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Sváfnir Ingi með mömmu og pabba.

Það var kominn tími til að frumburðurinn fengi nafn áður en eitthvað af ónefnunum, sem hann hefur verið kallaður, myndi festast við hann. Eftir mikil heilabrot og vísindalegar stigagjafir og útlokunaraðferðir urðum við loks sammála um nafn á drenginn.

Skírnin fór fram í Hjallanesi í blíðskaparveðri og að viðstöddu margmenni. Séra Sváfnir, afi Elsu, skírði drenginn. Drengurinn var skírður Sváfnir Ingi.

Þúsund þakkir fyrir okkur.

Myndir

 

Nonni skrifaði þann 10.ágúst 2004
Metferð í Veiðivötn
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Nonni með 7 punda fiskinn.

Ég og Gunnar Hall vinur minn vorum í Veiðivötn dagana 23. - 25. júlí. Elsa og Sváfnir Ingi komu 25. ásamt fríðu föruneyti úr Hjallanesi. Enda kominn tími á að strákurinn komi í Veiðivötn, rétta að verða tveggja mánaða;)

Fyrsta daginn veiddi ég stærsta fisk sem ég hef veitt í vötnun, 6 punda bolta í Stóra-Skálavatni. Þann sama dag fengum við fjóra úr Kvíslarvatni og tvo þriggja punda úr Skálavatni. Maður var því nokkuð sáttur með ferðina að kvöldi fyrsta veiðidags. Daginn eftir börðum við Litla-Sjó og Grænavatn en án árangur. Við ákváðum því að kíkja aftur í Kvíslarvatn og lentum í mokveiði. Fengum 5 flotta fiska, þar af var Gunni með einn fimm punda og ég með einn sjö punda. Þetta var því frábær ferð, í góðu veðri, á einum fallegasta stað á Íslandi.


Myndir

 

Nonni skrifaði þann 20.júlí 2004
Heyskapur í Hjallanesi
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Litla fjölskyldan í sveitinni.

Sólin skín, sæt graslyktin af þurru heyjinu fyllir vitin. Það eru baggar! Ættingjar, vinir, ungir sem aldnir eru mættir til að leggja hönd á plóg. Það er alltaf jafn mikil sjarmi yfir þessu árlega "viðburði" sem er að margra mati eitt af skemmtilegustu störfunum í sveitinni.

Við komum um 2000 böggum í hús og lentum í slagveðursrigningu með síðustu tvo vagnana.

Hérna eru myndir úr böggunum:Myndir

 

Nonni skrifaði þann 18.júlí 2004
Hvammstangi
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Amma á Hvammstanga með litla Jón.

Við komum frá Hvammstanga í dag eftir að hafa heimsótt Siggu ömmu. Það var rétt um 10 stiga hiti þar og vindur af norðri allan tímann(á sama tíma var 20 stiga hiti og sól í bænum).

Litli Jón lék á alls oddi og brosti sínu breiðasta fyrir langömmu sína. Við tókum nokkrar myndir sem eru hér:

Myndir

Nonni skrifaði þann 5.júlí 2004
Frábært brúðkaup
 
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Gísli & Anna stíga brúðkaupsdansinn.

Gísli & Anna gengu í það heilaga sl. laugardag. Séra Sváfnir gaf þau saman í Kópavogskirkju í fallegri athöfnun. Veislan, sem var tær schnilld, var haldin í Hásölum í Kópavogi. Þar tóku á móti gestum frábærar veitingar í fallega skreyttum sal. Skemmtiatriðin voru alveg brilliant og taumlaus gleðin stóð lang fram eftir nóttu ...

Til lukku Anna & Gísli! Lifi hjónin!

Ég náði því miður ekki mikið af góðum myndum en hérna er eitthvað:

Myndir

Nonni skrifaði þann 20.júní 2004
Nýjar myndir
 
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Þuríður leikur listir á 17. júní.

Með því einfaldlega að smella á hlekkinn hérna að neðan getur þú skoðað nýjar myndir. Myndirnar eru teknar á tímabilinu 10.-19.júní. Myndirnar eru teknar á heimili okkar Elsu, á ættaróðalinu Hjallanesi í Landsveit og á sveitsetrinu Bjalla.

Myndir

Nonni skrifaði þann 20.júní 2004
Útskrifuðumst sama daginn
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Frá útskrift HR.

Við Elsa útskrifuðumst bæði laugardaginn 12.júní sl. Frá og með þeim degi erum við því miklu merkilegri heldur en við vorum fyrir þann dag og viljum við biðja fólk um að taka tillit til þess.

Alls voru 256 útskrifaðir frá HR en frá KHÍ voru það 478 kandidatar sem brautskráðust.

 

Nonni skrifaði þann 20.júní 2004
Mikil óánægja með viðurnefnið
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Birgir hjúkrunarfræðingur með litla Jón.

Mikil óánægja er með viðurnefnið sem frumburður okkar Elsu hefur hlotið. Ættingjar og vinir hafa varað við varanlegum áhrifum þess á barnið að vera kallað slíku ónefni og skorað á foreldra þess að láta af uppnefningunni. Við höfum orðið við þessum tilmælum og fram að skírn, sem við stefnum á að verði 8.ágúst, verður barnið kallað litli Jón.

 

Nonni skrifaði þann 20.júní 2004
Heyskapur langt kominn í Hjallanesi
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Kjartan stórbóndi í Hjallanesi við heyslátt í kvöldsólinni og Hekla í baksýn.

Sláttur hófst þann 15.júní og búið er að pakka tæpum 200 rúllum af gæða heyi. Að sögn Kjartans er það rétt um þriðjungur af því sem þarf til fóðrunar nautgripana. Áætlað er heyskap ljúki í kringum næstu mánaðarmót.

Nonni skrifaði þann 8.júní 2004
Dóri frændi varð á undan afanum
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Gutti, Dóri frændi og bangsinn Ruud Van Dóri.

Dóri frændi kom færandi hendi frá Old Trafford í Manchester. Dóri færði Gutta myndarlegan Manchester United bangsa sem hefur nú hlotið nafnið Ruud Van Dóri. Með gjöfinni var Dóri á undan afanum,einum helsta Arsenalaðdáanda sunnan heiða, að leggja lóð á vogaskálarnar við val Gutta á uppáhaldsliði í enska boltanum.

Hérna eru nokkrar myndir frá síðustu dögum:

Myndir

Nonni skrifaði þann 6.júní 2004
Birna amma í heimsókn
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Gutti með Birnu ömmu
. Smelltu á myndina til að fá hana í fullri stærð

Gutti setti upp þetta líka fína ljósmynda-bros þegar að Birna amma var í heimsókn núna um helgina.

Annars er Gutti búinn að vera slæmur í maganum og þar af leiðandi ekki sofið mikið, né foreldrar hans :(. En hann virðist allur vera að koma til, þökk sé hinum mögnuðu Minifom dropum.

Nonni skrifaði þann 6.júní 2004
Magnaður hjartsláttur 
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Smelltu á myndina til að heyra hjartsláttinn

Einn af þeim þáttum sem Ása ljósmóðir aðgætti, í heimsóknum okkar til hennar, var hjartslátturinn í barninu. Þetta fannst okkur alltaf jafn frábært að heyra.


Nonni skrifaði þann 6.júní 2004
Meðgangan í myndum 
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Elsa í blóma

Við tókum nokkrar myndir á meðan að á meðgöngunni stóð, hérna eru nokkrar af þeim:

Myndir


Nonni skrifaði þann 4.júní 2004
Mældur og vigtaður 
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Gutti var ekki par hrifinn af hausamælingunum

Ingibjörg frá Miðstöð heilsuverndar barna kom í heimsókn og vigtaði og mældi Gutta í gær. Hann vó 4300 grömm og höfuðmálið var 37 cm. Þannig að á fjórum dögum er hann búinn að þyngjast um tæp 300 grömm og höfuðmálið búið að aukast um tæpa 2 cm.

Hérna eru myndir af mælingum ofl.:

Myndir


Nonni skrifaði þann 2.júní 2004
Nýjar myndir komnar inn 
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Gutti með Guðna afa sínum

Var að setja inn nokkrar nýjar myndir af Gutta...

Myndir


Nonni skrifaði þann 2.júní 2004
Pixies miði til sölu 
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Miðinn góði

Hérna gefur að líta miða á tónleika stór hljómsveitarinnar Pixies sem fram fóru í Kaplakrika miðvikudaginn 26.maí sl.. Glöggt auga tekur eftir því að miðinn er ónotaður. En á meðan að tónleikarnir fóru fram var eigandi miðans, sá sem þetta skrifar, á fæðingadeild Landsspítalans. 

Ekki það að maður sé sár, bitur, svekktur eða hafi grátið sig í svefn yfir að hafa misst af tónleikunum, þá langar mig að biðja þig, lesandi góður, að ef þú veist um einhvern sem vill kaupa miða á þessa frábæru tónleika þá getur viðkomandi sent línu á nonniogelsa@simnet.is  :)  :(


Nonni skrifaði þann 2.júní 2004
Fyrsta körfuboltaæfingin
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Gutti á fyrstu körfuboltaæfingunni

Gutti Jóns fór á sína fyrstu körfuboltaæfingu í dag. Á æfingunni var farið yfir helstu reglur leiksins og undirstöðuatriði í boltameðferð. Gutti sýndi fádæma frammistöðu á æfingunni og vakti boltameðferð hans mikla hrifningu viðstaddra. Það má því með sanni segja að hann hafi meðfædda hæfileika í íþróttinni. ;) 


Nonni skrifaði þann 2.júní 2004
Geisp
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Gutti geispandi

Einn svaðalegasti geispi sögunnar leit dagsins ljós í dag og er hægt að nálgast hann með því að smella á myndina hérna til hliðar. Gutti var vær og góður í nótt og vaknaði einungis tvisvar til þess að fá sér að drekka. 

Elsa er ekki alveg jafn hress, er búin að vera með hita og er núna komin á sýklalyf vegna sýkingar.


Nonni skrifaði þann 1.júní 2004
Gutti kominn heim
Gutti sofandi
simnet.is/nonniogelsa / Nonni.
Gutti sáttur í vöggunni sinni

Í gær kom gutti heim eftir að hafa verið á spítalanum frá fæðingu eða í fjóra daga. Þetta var ansi stór dagur hjá honum því hann var að fara í fyrsta skiptið út og í fyrstu bílferðina sína. Hann virðist kunna nokkuð vel við sig í nýju heimkynnunum, talar allavegan ekki um annað.

Hann drekkur vel og virðist hafa það nokkuð gott. Og þess má til gamans geta að hann setti persónulegt met með því að skila fjórum kúkableyjum fyrir hádegi í dag;)


Nonni skrifaði þann 30.maí 2004

Drengur fæddur!
Klukkan 14:28 fimmtudaginn 27.maí eignuðumst við Elsa dreng. Hann vó 4020 grömm og var 53 cm að lengd. Fæðingin tók langan tíma en móður og barni heilsast vel.

Strákurinn er af mörgum talinn ákaflega myndarlegur enda af fallegu fólki kominn. Myndir af guttanum eru hérna:

Myndir

senda okkur póst