 |
BLOGGIÐ
lítt ígrundaðar vangaveltur
MYNDAALBÚMIÐ
POPULUS TREMULA
„KENNINGAR"
ÞRÍHLJÓMUR
Sæluvika á Sauðárkróki hófst í dag með opnun myndlistarsýningar í Safnahúsinu á Sauðárkróki. Þar sýna Elli, Guðbrandur Ægir og Aðalsteinn Svanur.

AFMÆLISSÝNING
Um páskana 2007 hélt Aðalsteinn Svanur myndlistarsýningu í Deiglunni á Akureyri. Gilfélagið stóð að sýningunni.
Þessi sýning markaði tímamót á ferli Aðalsteins því um páskana voru liðin 25 ár frá fyrstu sýningu hans. Sú var haldin í Árskógi um páskana 1982 og eftir það varð ekki aftur snúið.
Titill sýningarinnar var „Tíminn snýst eins og jörðin“, á henni voru ljósmyndir sem með einum eða öðrum hætti ten tímanum.
Enda er myndavélin hin eina sanna tímavél.

ÚTSALA
Dagana 27. og 28. janúar 2007 hélt Aðalsteinn Svanur útsölu á málverkum í Populus tremula.
Á fjórða tug verka voru boðin til sölu á vægu verði. Útsölunni var m.a. ætlað að vekja athygli á myndlist sem framleiðslu- og neysluvöru.

MINNING UM ÁFANGASTAÐ
Að kvöldi 6. október 2006 var haldið bókmenntakvöld í Populus tremula, helgað kvæðum Aðalsteins Svans Sigfússonar.
Ljóð skáldsins voru lesin og einnig kom hann fram sem trúbadúr og söng nokkur kvæða sinna við eigin lög og undirleik.
TVÍSÝNT
Þann 7. janúar 2006 var opnuð á Café Karólínu á Akueyri sýningin Tvísýnt. 3 ljósmyndir Aðalsteins Svans Sigfússonar .
FARANDSÝNING HEIMILANNA

Á fullveldisdaginn 1. desember 2005 var opnuð við hátíðlega athöfn myndlistarsýning Gunnars Kr. „Farandsýning heimilanna".
Sýningin hefur göngu sína í stofunni á efri hæð hússins númer 15 við Spítalaveg á Akureyri.
Sýning þessi er öllum opin að höfðu samráði við húsráðanda og mun standa óbreytt fram yfir áramót að skipt verður um verk og það sem nú er til sýnis fer á annað heimili.
Þetta merkilega verkefni verður kynnt nánar í fleiri fjölmiðlum innan skamms.
HEIMKYNNI minningar elds
Laugardaginn 12. nóvember 2005 kl. 14 var opnuð sýningin Heimkynni, minningar elds í Populus tremula á Akureyri.
Á sýningunni eru nokkrar ljósmyndir af sögu æskuheimkynna ASvS, íbúðarhússins á Raðavík á Árskógsströnd. Með sýningunni er bundinn endahnútur á heimkynnaverkefnið sem verið hefur rauður þráður í myndlist ASvS undanfarin sex ár.
Næsta sýning ASvS verður svo á Café Karólínu í ársbyrjun 2006.
SAMSÝNING
UM PÁSKANA
Um páskahelgina 2005 halda félagar í Populus
Tremula samsýningu í því ágæta
plássi. Sýningin verður opnuð laugardaginn
24. mars klukkan 15:00. Búast má við eihverjum
uppákomum á opnun...
Aðalsteinn Svanur sýnir portrettmyndir að sætum Eyfirðingum sem eiga það sameiginlegt að ver kýr... frá Kristnesi allar ef farið er í smáatriði.

HEIMKYNNI og ÖXLAR OG ILLÞÝÐI
Í POPULUS TREMULA
Þann 10. desember 2004 voru opnaðar
tvær sýningar í Populus tremula. Aðalsteinn
Svanur Sigfússon sýndi ljósmyndaröðina
Heimkynni, 25 bleksprautuprentaðar ljósmyndir á
segldúk og Sigurður Heiðar Jónsson sýndi
innsetninguna Öxlar og illþýði.
Sýningin var opnuð með hátíðarhöldum
kl. 20 að kvöldi föstudags og hljómsveit Sigurðar
Jónssonar lék við góðar undirtektir
fjölda gesta.
Einnig komu fram gestasöngvararnir Sigurður Heiðar
Jónsson sem söng þýðingu sýna
af kvæði við lag Tom Waits, Johnsbugh Illinois, sem
í staðfærslu SJ er Ytri Varðgjá í
Eyjafjarðarsveit. Aðalsteinn Svanur söng og lék
eigin lög og kvæði.
Hvammur fasteignasala og Ásprent Stíll styrktu framkvæmdina.

HUGSANIR
Laugardaginn 10. júlí 2004 var
opnuð á Café Karólínu á Akureyri
sýningin Hugsanir.
Þar sýndu Aðalsteinn Svanur og Elli 6 nýlegar
hugsanir sem þeir myndgerðu með aðstoð ljósmyndavélar,
tölvuprentunar og texta.

|
 |